Komdu á PET EXPO og kynntu þér allt það nýjasta á markaðinum
Hvað bíður þín á PET EXPO 2027?
PET EXPO 2027 verður fjölbreytt og lifandi sýning fyrir alla sem eiga gæludýr, hafa áhuga á dýrum eða vilja einfaldlega kynnast betur öllu því nýjasta sem tengist gæludýrunum okkar.
Á einum stað koma saman fyrirtæki, sérfræðingar, félagasamtök og aðrir aðilar úr gæludýraheiminum. Gestir geta kynnt sér fjölbreytt úrval af vörum og þjónustu, allt frá fóðri, heilsu og umhirðu til búnaðar, þjálfunar, tækni, trygginga, leikfanga og alls þess sem gerir lífið með gæludýrum betra og skemmtilegra.
Á PET EXPO verður ekki aðeins hægt að skoða og versla. Markmiðið er að skapa skemmtilega upplifun fyrir alla fjölskylduna, með fræðslu, kynningum, sýningum, sérfræðingum og fjölbreyttri dagskrá þar sem gestir geta lært, upplifað og fengið nýjar hugmyndir.
Þetta er í fyrsta sinn sem sýning af þessu tagi er haldin á Íslandi og ætlunin er að leiða saman gæludýraeigendur, dýravini og gæludýrageirann á einum stað.
Komdu og upplifðu í tvo daga þar sem gæludýrin okkar eru í aðalhlutverki
– með fróðleik, nýjungum, skemmtun og fjölbreyttri upplifun fyrir alla fjölskylduna -.