Hreyfiafl sýningarinnar
PET EXPO Iceland er ný sýning tileinkuð gæludýrum, gæludýraeigendum, fjölskyldum, fagfólki og öllum þeim sem hafa áhuga á umhirðu, velferð, vörum og þjónustu tengdri dýrum.
Sýningin verður haldin í fyrsta sinn og er hugsuð sem lifandi og skemmtilegur vettvangur þar sem fyrirtæki, félagasamtök, sérfræðingar og gestir koma saman. Gestir fá tækifæri til að kynna sér nýjar vörur, hitta sýnendur, afla sér fróðleiks og njóta fjölskylduvænnar upplifunar.
Á PET EXPO verður lögð áhersla á vörur og nýjungar, heilsu og umhirðu, fræðslu og sérfræðiráðgjöf, sýningar og dagskrá, félög og samfélag, auk upplifunar fyrir alla fjölskylduna.
Sýningin er skipulögð af Vista Expo og ExpoSýn, sem sameina reynslu sína af sýningahaldi, viðburðum og markaðssetningu til að skapa sterkan og nýjan vettvang fyrir gæludýramarkaðinn á Íslandi.
Sýnishorn af viðburðum sem Vista Expo og Exposýn hafa haldið
Vista Expo og Exposýn standa að fjölbreyttum ráðstefnum og sýningum þar sem fólk og fyrirtæki koma saman til að deila nýjungum, fræðslu og innblæstri.
Hér eru nokkrir viðburðir sem við höldum utan um - hver með sína einstöku upplifun.